Ætli þetta sé rétt? Að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi, eins og aðrir, áttað sig á því hve brýnt er að lækka stýrivexti á Íslandi hratt og mikið, en hafi ekki viljað taka stærra skref núna til að "gefa ekki slæmt fordæmi" í öðrum löndum?
Þótt aðstæður á Íslandi séu að flestu leyti einstakar.
Ef þetta er rétt þykir Trésmiðjunni illt að vita.
Það bendir vissulega til þess hvað Seðlabankastjórinn norski lagði þunga áherslu á að víst yrðu stýrivextirnir lækkaðir verulega - en bara næst, næst ...
En við getum ekki sætt okkur við að lífsnauðsynlegar ráðstafanir verði að bíða svo einhverjar vinnureglur AGS laskist ekki ofurlítið.
Og það hlýtur nú að vera sameiginlegt keppikefli Seðlabanka og ríkisstjórnar að koma AGS í skilning að vissulega verður að lækka stýrivextina aftur, meira og fyrir alla muni töluvert fyrir hinn næsta formlega vaxtaákvörðunardag í júní.
Ef ekki mun andúðin á AGS og öllum ráðstöfunum sjóðsins (sem flestar eru eflaust ill nauðsyn) aukast mjög verulega.
Blogg
ANDÚÐ Á AGS MUN VAXA, EF ...
12:32 › 7. maí 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
