Þetta bréf Elíasar Péturssonar á síðu Egils Helgasonar sýnir að ríkisstjórnin verður að taka þær raddir alvarlega sem hvetja til róttækra aðgerða.
Annaðhvort einhvers konar niðurfellingar eða "leiðréttingar" á skuldum, eða hreinlega að fólk hætti að borga af skuldunum sínum.
Þó ég hafi mikla trú á Gylfa Magnússyni viðskiptaráðherra, þá hefur hann líklega afgreitt hina "róttæku" aðeins of léttilega undanfarið.
Nú þætti mér til dæmis kjörið að hann útskýrði fyrir mér af hverju kenningar um niðurfellingar vilja ekki deyja. Það eru ekki aðeins pólitískir andstæðingar ríkisstjórnarflokkanna sem halda fram slíkum kenningum. Innan Vinstri grænna er Lilja Mósesdóttir talsmaður svipaðra hugmynda.
Blogg
SKÝRINGAR, TAKK
00:45 › 4. maí 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
