ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SAMFYLKING AÐ UNDIRBÚA UNDANHALD?

11:37 › 4. maí 2009


Tvívegis um helgina heyrði ég eða sá haft eftir Jóhönnu Sigurðardóttur að ástæða þess hvað ríkisstjórnarflokkarnir gefa sér góðan tíma til að ganga frá stjórnarsáttmála sé sú að vanda þurfi til verka þar sem ríkisstjórnin ætli að sitja út kjörtímabilið.

Altso í fjögur ár.

Er þetta vísbending um að Samfylkingin sé byrjuð massíft undanhald í ESB-málinu? Og jafnvel í stjórnlagaþingsmálinu líka?

Því er það ekki rétt skilið hjá mér að ef sótt yrði um aðild strax í sumar og aðildarviðræður tækju kannski ár í mesta lagi, þá yrði svo fljótlega að kjósa upp á nýtt?

Og líka ef stjórnlagaþing yrði fljótlega sett á og það skilaði  niðurstöðu um nýja stjórnarskrá innan nokkurra missera?

Þá yrði líka að kjósa aftur, er það ekki?

Svo ef þessi tvö mál yrðu afgreidd, þá væri útilokað að stjórnin sæti út kjörtímabilið.

Af hverju tekur Jóhanna þá aftur og aftur svona til máls? Er verið að undirbúa undanhaldið?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?