ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

EKKI KLÚÐRA ÞESSU!

20:19 › 29. maí 2009


Ég er að reyna að stilla mig um að trúa einhverjum skýjaborgum um að við finnum bráðum olíuna bulla upp á Drekasvæðinu og það bjargi okkur út úr öllum okkar erfiðleikum - er fram líða stundir.


Best að trúa því alls ekki.

En samt ... samt er auðvitað algjörlega ófyrirgefanlegt ef íslensk stjórnvöld eru að klúðra þessari blessaðri olíuleit eins og þessi olíusérfræðingur Norðmanna hér heldur fram.

Hann segir að vegna flókinna skattalaga, sem verki lítt hvetjandi á olíufyrirtækin, hafi áhugi á olíuleitinni á Drekasvæðinu verið mun minni en ella hafi orðið.

Og athugið að hann er ekki að miða við amerísk skattalög eða eitthvað þvíumlíkt frjálshyggjuverk - hann er bersýnilega að miða við norsk lög.

Það er þess vegna alveg óhætt að hlusta á manninn.

Altént - íslensk stjórnvöld mega ekki klúðra þessu. Nógu miklu erum við þegar búin að klúðra.

Kannski er engin olía þarna, það getur vel verið. En það má EKKI klúðra þessum möguleika.

Katrín, Össur, Jóhanna, Steingrímur - hlustið!

Og farið eftir því sem Norsarinn segir.

Ekki enn eina "sér-íslenska" leið. Í þessu tilfelli gildir að gera allt eins og Norðmenn!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?