Það er svo skrýtið ástand á Íslandi að þegar ég sá einhvers staðar fyrirsögnina "Skattahækkanir í næstu viku", þá hugsaði ég eiginlega:
"Sjúkk! Loksins!"
Ég segi ekki að ég hafi rekið upp fagnaðaróp, en mér fannst þetta þó ótvírætt jákvætt.
Alltof lengi hefur verið beðið eftir "ráðstöfunum í ríkisfjármálum". Meðal annars af því þær ráðstafanir hefur skort hefur ekki reynst unnt að lækka vexti - eins og er þó svo bráðnauðsynlegt.
En nú eru sem sagt "ráðstafanir" loksins á leiðinni. Þær munu innihalda skattahækkanir, það vissum við vel fyrirfram, þótt Sjálfstæðisflokkurinn hafi að vísu reynt að komast gegnum kosningabaráttuna með lygum um að þær væru ónauðsynlegar.
Loforð Sjálfstæðisflokksins um að hækka ekki skatta ættum við að geyma okkur í minni, til marks um hve óábyrgur sá flokkur er orðinn.
En nú er sem sagt komið að því - hinar langþráðu skattahækkanir eru að skella á!
Blogg
HÚRRA! LOKSINS SKATTAHÆKKANIR!
09:11 › 27. maí 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
