Margrét Tryggvadóttir lætur ekki sitt eftir liggja við að upplýsa okkur um furðu Borgarahreyfingarinnar yfir vinnubrögðum á Alþingi.
Skemmtileg lesning hér. Ég vara framsóknarmenn við: Þeirra flokkur fer ekki vel út úr þessu. Frekar en öðru þessi misserin.
Hér er það Eygló Harðardóttir sem fær á baukinn.
Eins og ég sagði í gær: Ég er alveg viss um að ráðsettir þingmenn ráðsettra flokka munu beita Borgarahreyfinguna miklum þrýstingi um að láta af þessum opinskáu bloggskrifum sínum.
En þeim mun mikilvægara er að þingmenn hreyfingarinnar standist þann þrýsting.
Að upplýsa okkur um fíflagang í þingstörfum er vissulega alveg nóg erindi - og göfugt - fyrir nýjan flokk.
Hins vegar furða ég mig á hve rólegur í tíðinni minn góði vinur Þráinn Bertelsson virðist vera. Frá honum heyrist hvorki hósti né stuna. Kannski sækir að honum syfja á Alþingi.
Blogg
Á BAUKINN FRÁ BORGARAHREYFINGUNNI
13:21 › 27. maí 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
