ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

AÐ SKIPAN STASI?

08:04 › 27. maí 2009


Jahérna.

Kannski er öllum sama, en mér finnst þetta merkilegt.

Að lögreglumaðurinn sem skaut Benno Ohnesorg til bana hafi verið njósnari austur-þýsku leyniþjónustunnar Stasi.

Og kannski "agent provocateur" - það er að segja útsendari sem hefur það hlutverk að efna til ófriðar í herbúðum fjandmannanna.

Benno Ohnesorg tók þátt í mótmælum í Berlín 2. júní 1967 gegn heimsókn Íranskeisara. Óeirðir brutust út og lögreglan sýndi mikla hörku.

Einn lögreglumaðurinn, Karl-Heinz Kurras, tók Benno Ohnesorg nánast af lífi.

Þessi atburður vakti gífurlega reiði í Vestur-Þýskalandi. Upp spratt "2. júní-hreyfingin" sem varð einn af helstu þráðunum í vestur-þýsku hryðjuverkahreyfingunni. Fléttaðist saman við Baader-Meinhof samtökin (eða Rote Armee Fraktion).

Þau samtök ollu miklum usla í Þýskalandi og víðar í meira en áratug. Þau gerðu ekki mikið af sér miðað við ýmis önnur hryðjuverkasamtök, einkum nú á seinni tímum, en áhrifin af starfsemi þeirra voru mjög víðtæk.

Ég var einmitt að horfa á bíómyndina Baader-Meinhof Komplex sem rekur þessa sögu prýðilega.

Nú kemur sem sagt upp úr dúrnum að Kurras var Stasi-maður. Ekki hafa þó fundist skjöl sem benda til að hann hafi drepið Benno Ohnesorg beinlínis að skipan Stasi.

Það kæmi kannski ekki á óvart, miðað við þessar fréttir. Nógu miklum ófriði kom morðið á Ohnesorg a.m.k. af stað.





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?