Hérna er skemmtileg frétt sem ég rakst á á mbl.is. Þar segir Ólafur Ólafsson sérstaklega glaður í bragði frá kaupum vinar síns Sheik Múhameðs á hlut í Kaupþingi.
Þetta var tæpum tveim vikum fyrir hrun, eða þar um bil.
Um þann góða Ólaf (sem nú er búsettur í Sviss eftir því sem DV í dag segir) er færsla á alfræðiritinu Wikipedia, íslensku útgáfunni.
Hún er bráðfyndin - því hún er svo hryllilega ósegjanlega úrelt. Svona hljóðar æviágrip Ólafs þar:
"Ólafur Ólafsson (fæddur 23. janúar 1957) er íslenskur kaupsýslumaður. Hann var ráðinn forstjóri Samskipa hf. árið 1990. Árið 2003 varð hann starfandi stjórnarformaður Samskipa. Hann kom við sögu í baráttunni um Ker hf. og var í forsvari fyrir Kjalar ehf. sem hafði betur gegn fjárfestingarfélaginu Gretti hf. í baráttunni um félagið.
Ólafur er er stjórnarformaður Alfesca og einnig Kjalars invest sem er annar stærsti hluthafi Kaupþings banka. Hann fór fyrir hópnum sem keypti Búnaðarbankann.
Í upphafi árs 2007 stofnaði Ólafur, ásamt konu sinni Ingibjörgu Kristjánsdóttur
landslagsarkitekt, velgerðarsjóð sem ætlað er að styrkja fátæk börn í
Afríku til mennta. Hjónin lögðu fram einn milljarð króna sem stofnfé
sjóðsins.
Sumarið 2007 hófust deilur milli Ólafs og nágranna hans í Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi, þar sem Ólafur á sumarbústað. Kvörtuðu nágrannarnir undan hávaða frá þyrlu sem Ólafur notar til að ferðast milli Reykjavíkur og sumarbústaðar síns, en hann gaf lítið fyrir kvartanirnar."
Það virðist satt að segja ekki mikill kraftur í hinni íslensku Wikipediu fyrst þetta rugl hangir þarna inni.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
