ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SKANDALL, ÓFYRIRGEFANLEGUR SKANDALL!

19:50 › 26. maí 2009


Maður verður að forgangsraða skandölum.

Og í sjónvarpinu áðan sá ég einn stórkostlegan!

Ótrúlegan, ófyrirgefanlegan skandal!

Það var verið að auglýsa tónleika einhvers staðar þar sem íslenskir tónlistarmenn ætla að herma eftir frægum útlenskum hljómsveitum.

U2, Led Zeppelin og fleiri.

Rokk og ról sirkus, minnir mig þetta hafi kallast.

Nema hvað, þá stóð skýrum stöfum á skjánum að meðal hljómsveitanna sem hermt yrði eftir væri Roling Stones.

ROLING STONES!!

Ég meina, ef þetta er ekki skandall, þá veit ég ekki hvað skandall er.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?