ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SJÁVARÚTVEGSSTEFNA ESB Á UNDANHALDI

09:27 › 26. maí 2009


Jæja já? Svo sjálft hið óttalega Evrópusamband ætlar að draga í land með sína skelfilegu sameiginlegu sjávarútvegsstefnu?

Sjá þessa frétt hér.

Hvað segja andstæðingar Evrópusambandsumsóknar við því?

Vonandi getur þetta orðið til að draga úr ótta einhverra við aðildarumsóknina.

Og alveg sérstaklega: Vonandi getur þetta orðið til að draga úr (og helst koma alveg í veg fyrir) yfirvofandi málþóf stjórnarandstöðunnar um aðildarumsókina.

Mér sýnist forystumenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks nú hóta því að reyna að tefja málið með því að tala um það í allt sumar.

Það sé svo flókið.

En málið er í raun skelfilega einfalt.

Við þurfum að sækja um. Punktur. Senda okkar frekustu og flinkustu og ósveigjanlegustu samningamenn á vettvang. Sjá hvað þeir komast langt. Greiða svo atkvæði um niðurstöðuna. Annar punktur.

Nýjar áherslur ESB í sjávarútvegsmálum verða vonandi til þess að þref út af þessum sjálfsögðu hlutum minnki.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?