ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

KLESSA

07:40 › 26. maí 2009


Í blöðunum í morgun segir að sænski sérfræðingurinn í bankakrísum, Josefsson, sem er ríkisstjórninni til ráðuneytis í hruninu, eigi það til að "æsa sig" á fundum með Íslendingum.

Og það komi illa við Íslendinga því menn hér séu ekki vanir svona "hreinskilni", segir líka í fréttinni.

Ég sem hélt að hreinskilni væri boðorð dagsins!

En svo er talað um meiningarmun á því hvernig á að ganga frá eignum gömlu bankanna.

Sem hafi átt sinn þátt í að Josefsson hótaði að hætta.

Jóhanna Sigurðardóttir gefur í skyn að hún sé að mörgu leyti sammála Josefsson en sjálfstæðismenn og framsóknarmenn hafi fyrir kosningar komið í veg fyrir að leið Josefssonar um eitt eignaumsýslufélag yrði farin.

Ef það var vandamál, þá er það nú væntanlega úr sögunni. Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn hafa ekki verulega pólitísk áhrif á Íslandi í bili.

En deilur virðast alla vega hafa komið upp milli Josefssonar annars vegar og einhverra Íslendinga hins vegar.

Og þá veit ég alveg með hverjum ég stend.

Annars vegar eru Íslendingar sem hafa komið sínum bankamálum í klessu. Já, einhverja þá verstu bankaklessu sem sögur fara af.

Hins vegar er Josefsson sem hefur farið víða um lönd og hjálpað fólki að þrífa upp bankaklessur.

Er ekki nokkuð augljóst hvorum aðila er betur treystandi?

Ég held alla vega að Íslendingarnir sem eiga við Josefsson ættu bara að gjöra svo vel og reyna að þola svolitla sænska "hreinskilni".

Ég mundi altént fara eftir hverju orði sem hann stingur upp á, frekar en að reyna enn eina ferðina að finna einhverja "íslenska leið".

"Íslensku leiðirnar" hafa leitt okkur í þessa klessu. Nú getum við alveg prófað þá sænsku.

Þó það kosti að nokkrir rjóðir karlar þurfi að hlusta á einn Svía æsa sig svolítið.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?