Sú glefsa af bloggsíðu Þórs Saari, sem hér birtist, hefur að vonum vakið umtalsverða athygli.
Enda er þetta ekki fögur lýsing á hinum íslensku "sérfræðingum" sem eiga að vera þingmönnum til ráðuneytis. Aðeins 3-4 virðast í einhverju jarðsambandi.
Í raun hefði Þór átt að birta nöfnin á hinum, þeim sjálfsánægðu. Er kannski hægt að nálgast einhvers staðar listann yfir gesti sem komu fyrir viðskiptanefndina þennan dag?
Þá fáum við að vita hvaða menn Þór er að tala um.
Hreinlegast væri náttúrlega að hann segði okkur það bara.
Það var viðbúið að ný hreyfing eins og Borgarahreyfingin gæti lent í vandræðum með að finna sér hlutverk á þingi, úr því að hún komst ekki í ríkisstjórn.
En bæði Þór Saari og Birgitta Jónsdóttir hafa á undanförnum dögum fært okkur ómetanlega innsýn í starfshætti í íslenskri stjórnsýslu.
Birgitta með skrifum sínum á bloggsíðu sinni um þref Sigmundar Davíðs um þingflokksherbergið sem Framsóknarflokkurinn telur sína eign.
Með þessu þau þegar gert mikið gagn.
Sjálfsagt munu ýmsir kerfiskarlar reyna að hræða þau Þór og Birgittu frá því að birta svona upplýsingar. Þær eigi ekki heima opinberlega, blablabla.
Ég vona hins vegar að þau haldi því áfram.
Allir þeir sem tilheyra íslenskri stjórnsýslu - bæði þingmenn og embættismenn - eru í vinnu hjá okkur. Við eigum rétt á því að fá að fylgjast með hvernig þeir vinna vinnuna sína.
Gott hjá ykkur, Þór og Birgitta.
Blogg
ER HÆGT AÐ NÁLGAST LISTANN?
22:03 › 26. maí 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
