ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÞJÓÐNÍÐINGUR

12:01 › 25. maí 2009


Ég las á Dv.is rétt í þessu að kvikmyndaleikarinn Johnny Depp væri að fara að leika í myndinni Public Enemy í Hollywood.

"En gaman," hugsaði ég með sjálfum mér. "Ætlar nú Hollywood að fara að búa til mynd eftir Þjóðníðingi Henriks Ibsens? Það er vel til fundið á þessum umrótstímum."

Því Þjóðníðingurinn fjallar eins og allir vita auðvitað um doktor Stockmann sem stendur einn í vegi "efnahagslegra framfara" í samfélagi sínu. Hann er úthrópaður sem þjóðníðingur þegar hann reynir að vara við þeirri leið sem samborgarar hans vilja fara til að verða ríkir.

Þetta virtist mjög passandi efni að fjalla um núna, fannst mér - og ánægjulegt að meira að segja Hollywood hafði áttað sig á því að Ibsen gamli hefði enn eitthvað að segja fólki.

En svo fór ég að kanna þessa fyrirhuguðu mynd. Og þá var þetta náttúrlega tóm vitleysa hjá mér.

Í fyrsta lagi heitir myndin Public Enemies, ekki Public Enemy.

Og hún er svo sannarlega ekki gerð eftir leikriti Henrik Ibsens.

Þetta er bara enn ein útgáfa um ómerkilegt glæpalið sem lék lausum hala um Bandaríkin á bannárunum. Pretty Boy Floyd, Baby Face Nelson og svoleiðis fugla.

Johnny Depp á að leika John Dillinger. Það er hann sem myndin er af hér að ofan. Og hasarleikstjórinn Michael Mann á að stjórna þessu.

Meira hvað Ameríkumenn eru veikir fyrir þessum glæponum sínum. Þeir eru hinar mýtólógísku hetjur amerísku þjóðarinnar. En fyrr má nú ausa en þurrausa.

Eflaust á ég eftir að sjá þessa væntanlegu mynd einhvern tíma þegar mér leiðist. En ég hefði samt frekar viljað sjá Þjóðníðing Ibsens.

En kannski það standi jafnvel okkur Íslendingum næst um þessar mundir að gera því ágæta verki einhver skil.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?