19:57 › 25. maí 2009
Gott hjá Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur að stíga aftur fram í von um að þjóðkirkjan taki ábyrgð á þeirri meðhöndlun sem hún fékk á sínum tíma.
Og Stefanía Þorgrímsdóttir líka.
Þetta var hörmulegt mál á sínum tíma, fyrir 13 árum, og er enn.
Og vonandi að Karl Sigurbjörnsson taki á málinu af festu, en láti ekki draga sig emjandi og öskrandi upp að altarinu, þar sem hann verður að biðjast afsökunar.
Því það verður hann að gera.
Engin spurning.
Og ekki bara fyrir hönd síns embættis. Hann tók persónulegan þátt í þögguninni á sínum tíma.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
