ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

EKKERT MINNST Á FJÁRMÁLASTARFSEMI?

15:17 › 25. maí 2009


Það verður nóg að starfa hjá Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráðherra á næstunni. Nú er búið að kynna nýja skýrslu erlendra sérfræðinga um háskólamál. Skemmst er frá því að segja að hinir útlensku sérfræðingar virðast telja allra brýnast að "íslenska háskólakerfið verði endurskipulagt eins fljótt og auðið er", eins og sagt er frá á mbl.is.

Fjölgun háskóla átti, eins og við munum, að vera eitt merkið enn um góðærið. Á tímabili var eins og nýr háskóli væri stofnaður vikulega.

Nú á að vinda ofan af þessu öllu með hraði - og byggja upp kerfi þar sem HÍ og HR yfirtaki alla hina háskólana. Ekki er mælt með því að leggja niður alla nýju smá-háskólana úti á landi, heldur þvert á móti tekið fram að halda eigi í þá - en þá í formi útibúa frá stóru háskólunum tveim.

Svo segir mbl.is um niðurstöðu sérfræðinganna:


"Sérfræðinefndin bendir á að hagkerfi Íslands sé of lítið til að landið geti keppt alþjóðlega á öllum sviðum vísinda, tækni og nýsköpunar. Því leggur nefndin til að áhersla verði lögð á tiltekin svið þar sem möguleikar á vexti eru góðir. „Okkur virðast þrjú fræðisvið sérstaklega lofandi: Jarðhitavísindi, lífvísindi og skapandi greinar/upplýsingatækni,“ segir m.a. í skýrslunni. Tekið er fram að heilbrigðisvísindi sé lofandi svið sem ekki sé fullnýtt hérlendis."



Jarðhiti, lífvísindi, heilbrigðisvísindi, listgreinar, upplýsingatækni. Þetta er altso framtíðin. Og verra gæti það vissulega verið.


Skrýtið samt að sérfræðingarnir skuli ekki minnast á alþjóðlega banka- og fjármálastarfsemi. Ætluðum við ekki að verða svo voða rík á henni?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?