Ég botna ekki í hvað ríkisstjórnin er að hugsa.
Það er nú liðin heil vika frá kosningum og hún hefur fundað sleitulaust í Norræna húsinu. Á hverjum einasta degi hafa Jóhanna, Steingrímur og helstu aðstoðarmenn þeirra hist þar.
Bak við lokaðar dyr.
Þrátt fyrir allar heitstrengingar og loforð um aukið gegnsæi, þá höfum við ekki fengið að vita eitt orð um hvað þessir flokkar eru að ræða.
Vissulega ætlast ég ekki til að svona stjórnarmyndunarviðræður fari fram fyrir alveg gjörsamlega opnum tjöldum, en hefði ekki verið hér tækifæri til að sýna í verki vilja þessarar ríkisstjórnar til nýrra og gerbreyttra vinnubragða en hér hafa tíðkast?
Með því að upplýsa nokkurn veginn jafnóðum um hvað er að gerast hvenær, hvað er verið að ræða, hver eru helstu sjónarmiðin sem uppi eru, og svo framvegis.
Ef þessari ríkisstjórn á að farnast vel þarf hún á stuðningi og velvilja almennings að halda í óvenjulega ríkum mæli. Því hún mun þurfa að grípa til óvinsælla ráðstafana. Hún verður að stöðugt að biðja um gúddvill almennings meðan farið er í gegnum hvern "brimskaflinn" af öðrum, svo ég noti nú orðalag sem nú er mjög í tísku.
Það gúddvill mun óðum minnka ef ekki fara að opnast dyrnar þarna úti í Norræna húsi. Og ef okkur er ekki treyst fyrir því hvað þau Jóhanna, Steingrímur og félagar eru að ræða - að minnsta kosti svona í stórum dráttum.
Átti ekki að vera af sú tíð að landstjórnin færi fram bak við luktar dyr?
Blogg
BAK VIÐ LUKTAR DYR
06:12 › 2. maí 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
