ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

OPIÐ BRÉF TIL JÓHÖNNU OG STEINGRÍMS J

15:17 › 17. maí 2009


Eftirfarandi opið bréf til Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar sendi ég rétt í þessu á póstföng þeirra hjá Alþingi. Ég vona að þau líti enn á þau, þótt bæði hafi nú aðalbækistöðvar sínar í ráðuneytunum.

Ágætu Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J Sigfússon.

 

Ég skrifa ykkur sem forystufólki nýrrar ríkisstjórnar.

 

Sjálfur er ég áhugamaður um samfélagsmál á Íslandi og langar að biðja ykkur að svara einni fyrirspurn frá mér.

 

Hverjir eru eigendur þeirra “jöklabréfa” sem skipta nú svo miklu máli fyrir framtíðina í íslensku efnahagslífi og hversu háar upphæðir á hver þeirra um sig?

 

Ég kem ekki auga á neina ástæðu fyrir því af hverju ætti að halda því leyndu hverjir eiga þessi bréf. Hef ég þá sérstaklega í huga heitstrengingar ykkar og annarra um að nú séu runnir upp tímar aukins gegnsæis á Íslandi.

 

Mér finnst raunar – og veit að það finnst fleirum – að við höfum skilyrðislausan rétt til að fá að vita þetta. Ekki sé ég að í því sambandi skipti neinu máli, þó ekki sé búið að útkljá hvað um þessi bréf verður.

 

Þetta bréf mun ég birta á bloggsíðu sem ég held úti. Ég mun líka birta þar svör ykkar strax og þau berast.

 

Með vinsemd og virðingu ...




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?