ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

VÍGAHUNDUR FRÁ GAMLA ÍSLANDI

09:32 › 15. maí 2009


Ég verð að viðurkenna að ég er svolítið ringlaður yfir Sigmundi Davíð. Er þetta ekki kornungur maður? Og kosinn beinlínis til að segja skilið við hina dimmu fortíð Framsóknarflokksins?

Og svo eyðir hann tíma sínum í að rífast og þrefa um þingflokksherbergi Framsóknarflokksins! Getiði ímyndað ykkur úreltara hugðarefni en þingflokksherbergi Framsóknarflokksins?

Og er svo með eitthvert kerfiskarlamúður um tillöguna um að sækja um aðild að ESB. Virðist vera sammála tillögunni en hótar samt einhverju múðri.

Bara svona til að gera sig gildandi.

Eins og þrautreyndur pólitískur vígahundur frá Gamla Íslandi.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?