Djúp og erfið efnahagskreppa á Bretlandi hefur - líkt og hér - orðið til þess að margir hafa síðustu mánuði talað um nauðsyn þess að siðvæða samfélagið upp á nýtt, til að losna við óforskammaða græðgi bankamanna og auðkýfinga.
Sú umræða dugði þó ekki til þess að þingmenn áttuðu sig á því að þeir hefðu gert eitthvað rangt þegar þeir mjólkuðu þingið fyrir útgjöldum, sem reyndust vera allt frá kattamat til fasteigna.
Það þurfti fjölmiðla til að opinbera það.
Og allt í einu (!) rann fyrir öllum þingmönnum að þetta var voðalega vafasamt, siðferðilega. Jafnvel fyrir mönnum sem höfðu ekki lyft augabrún yfir þessu áður.
Þetta sýnir okkur að það er ekki sjálfkrafa hægt að reikna með því að umræða um siðvæðingu hafi endilega siðvæðingu í för með sér.
Og ekki einu sinni hugarfarsbreytingu.
Því er bersýnilega ekki hægt að treysta.
Það verður að fylgja umræðunni eftir - upplýsa vandlega um alla spillingu, stóra sem smáa - og neyða spillingarkónana til að horfast í augu við sjálfa sig. Láta þá standa fyrir máli sínu; fyrr munu þeir ekki "átta sig á" að þeir hafi gert eitthvað rangt.
Og við verðum að vera tilbúin til að kasta þeim í ystu myrkur.
Þá fyrst gæti eitthvað breyst.
Þetta er sá lærdómur sem við eigum að draga af hneykslinu í Bretlandi.
Blogg
SIÐVÆÐING FYLGIR EKKI UMRÆÐU UM SIÐVÆÐINGU
12:48 › 14. maí 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
