Ungum var mér kennt að maður ætti umfram allt að sýna trúarbrögðum umburðarlyndi.
Og kirkjuleiðtogar hafa gjarnan vilja telja fólki trú um að trúarbrögð séu einmitt umburðarlyndið uppmálað.
Það er auðvitað fjarri öllum sanni. Þótt margt trúað fólk sé gott og gegnt og umburðarlynt í eðli sínu, þá eru trúarbrögð í eðli sínu ekki umburðarlynd.
"Ég er Drottinn, guð minn. Þú skalt ekki aðra guði hafa."
Og það má vekja athygli á skemmtilegri grein um Rannsóknarrétt kaþólsku kirkjunnar sem birtist í því hefti af tímaritinu Sagan öll, sem kemur út í dag.
Í Rannsóknarréttinum var nú aldeilis ekki umburðarlyndinu fyrir að fara.
Og þótt kristnir menn vilji halda því fram að Rannsóknarrétturinn sé úrelt þing sem komi nútímanum ekkert við, þá er hann nú ekki fjarlægari en svo að formlegum arftaka réttarins stjórnaði þangað til fyrir skemmstu Joseph nokkur Ratzinger, kardínáli frá Þýskalandi, uppalinn í Hitlers-æskunni.
Hann er nú páfi og gengur undir dulnefninu Benedikt sextándi.
Íslenska kirkjan vill náttúrlega hvorki við kaþólsku kannast, né Rannsóknarrétt. En hún er samt uppfull af umburðarleysi.
Það er einfaldlega eðli trúarbragða.
Þess vegna er það rétt hugsað hjá samtökunum Siðmennt að auðvitað sé rugl og þvæla að alþingismenn trítli allir sem einn í kirkju og þiggi blessun prests áður en þeir bretta upp ermar og taka til starfa.
Og vonandi að sem flestir þingmenn notfæri sér boð samtakanna um ávarp heimspekings; sjá hér.
Heimspekingar hafa reynst mannkyninu gagnlegri en prestar.
Og miklu meinlausari.
Blogg
HEIMSPEKINGAR ERU GAGNLEGRI EN PRESTAR
14:54 › 14. maí 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
