Ágæta Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra.
Ég skrifa þér sem áhugamaður um dómsmál og réttarfar á Íslandi. Þetta er opið bréf sem ég mun birta á bloggsíðu minni, auk þess að senda þér það, og mun einnig birta þar væntanlegt svar frá þér.
Málið snýst um ljótan blett á íslensku dómskerfi, hin svonefndu Guðmundar- og Geirfinnsmál sem spruttu af tveimur mannshvörfum laust fyrir miðjan áttunda áratug síðustu aldar.
Ég efast ekki um að þú þekkir vel til þessara mála. Og ég efast líka lítið um að þú hljótir, við lestur málsgagna, að komast að þeirri niðurstöðu að pottur hafi verið illa brotinn í þessum málum báðum.
Og réttlætinu illa þjónað.
Fyrir rúmum tíu árum tókst einum sakborninga í málunum tveimur með miklu harðfylgi að knýja fram mat Hæstaréttar á því hvort taka skyldi málin upp að nýju. Sú varð hins vegar hin ótrúlega niðurstaða réttarins að gera það ekki.
Sú niðurstaða virtist byggð á því að sakborningnum og talsmanni hans hefði ekki tekist að finna "ný sönnunargögn" sem líklegt mætti telja að breytt hefðu niðurstöðunni á sínum tíma. Algjörlega var litið framhjá því sem þó blasir við í málsgögnunum, sem sé að lögreglurannsókn málanna var mjög illa úr garði gerð, svo afar vægt sé til orða tekið, og niðurstaða dómara á sínum tíma því í raun algjörlega óskiljanleg.
Og gekk mjög augljóslega í bága við gott réttarfar.
Nú er orka sakborninga í þessum málum þorrin og ekki líklegt að þeir fáist til að hefja héðan af opinberan málarekstur til að fá málin tekin upp að nýju. Á hinn bóginn hefur allt sem um málin er fjallað undanfarin ár og áratugi aukið trú manna á að í þessum málum hafi verið framið mikið óréttlæti. Ekkert hefur hins vegar komið fram sem bendir til þess að niðurstaðan í málunum hafi verið rétt.
Því spyr ég þig sem dómsmálaráðherra og sérstakan áhugamann um réttlæti og sanngirni í dómskerfi Íslands, munt þú beita þér fyrir því að þessi mál verði tekin upp og skoðuð að nýju - með það fyrir augum að endurskoða niðurstöðu Hæstaréttar?
Úr því Hæstiréttur hefur þegar hafnað beiðni um endurupptöku málsins veit ég ekki hvaða leið væri rétt að fara, formlega séð, en ert þú ekki sammála mér um það að það standi upp á íslensk yfirvöld að kanna þennan blett á réttarfarinu, og þvo hann burt, fremur en treysta á að mannkynssagan sjái um það?
Og ert þú sammála mér um að málið sé brýnt?
Ég vonast til að fá svar frá þér hið fyrsta.
Með vinsemd og virðingu ...
Blogg
OPIÐ BRÉF TIL DÓMSMÁLARÁÐHERRA
07:32 › 12. maí 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
