Ásmundur Einar Daðason heitir nýr þingmaður Vinstri hreyfingarinnar - Græns framboðs.
Hann segist í Fréttablaðinu í dag vera á móti aðild Íslands að Evrópusambandinu. Sjá hér.
Það er gott og blessað. Vitaskuld hefur Ásmundur Einar fullan rétt á því.
En hann gengur undarlega langt. Hann segir: "Ég er mjög harður Evrópuandstæðingur og stend við það ... Þetta er mín sannfæring og prinsipp og ég mun fylgja því í rauðan dauðann."
Rétt áður en útlit virðist fyrir að Alþingi samþykki að sækja um aðild að ESB svo loksins fáist niðurstaða í það deilumál hvort aðild henti okkur eður ei, þá er harka Ásmundar Einars ekki aðdáunarverð.
Því maður vonar að þingmenn taki afstöðu til mikilvægra mála á málefnalegum grunni - í þessu tilfelli sem sagt á grunni þess sem kemur út úr aðildarviðræðum - en ekki á grundvelli þingmanna sem koma fyrirfram til leiks með sín prinsipp sem þeir fylgja fram "í rauðan dauðann".
Sjálfstæðismenn höfðu nýfrjálshyggjuna að sannfæringu og prinsippi. Þeir fylgdu henni í rauðan dauðann - ekki fyrir þá sjálfa, heldur fyrir okkur.
Ég frábið mér svona "stefnufasta" þingmenn. Ég ætlast til að þeir skoði mál með opnum huga þegar þau liggja fyrir.
Öll mál.
Blogg
EKKI SVONA ÞINGMENN, TAKK!
14:53 › 12. maí 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
