Rétt að vekja athygli á skemmtilegri mynd sem birtist í Fréttablaðinu í morgun af Steingrími J. Sigfússyni að keyra til Bessastaða í gær þegar nýja stjórnin tók við völdum.
Steingrímur er á gamla eiturgrænbláa Volvónum sínum.
Volvó er vissulega heimsins besti bíll og vel við hæfi af Steingrími að sýna hollustu sína við allt gamalt og gott með því að koma keyrandi á þessum gamla og góða bíl til svo virðulegrar athafnar.
En þó Steingrímur vilji halda fast í það gamla (og sé á leiðinni að handsala vinstri stjórn), er samt ekki of langt gengið að keyra vinstra megin? Það er nú 41 ár síðan tekin var upp hægri umferð á Íslandi.
Blogg
STEINGRÍMUR! ÞAÐ ER HÆGRI UMFERÐ!
11:11 › 11. maí 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
