ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

AÐ STYÐJA RÍKISSTJÓRN

10:18 › 11. maí 2009


Jájá, það má láta ýmislegt fara í taugarnar á sér.

Til dæmis að engin sérstök ný vinnubrögð skyldu viðhöfð þegar þessi nýja ríkisstjórn var mynduð. Þetta var allt frekar klassískt. Fundað bak við luktar dyr, allt lagt undir blessun einhverra flokksráða. En blessaður almenningur lítt upplýstur fyrr en allt var um garð gengið.

Látum það vera, sérstaklega ef vel tekst til - en þó vil ég brýna fyrir þessari ríkisstjórn að koma upplýsingamálum sínum í annað og betra horf en tíðkast hefur. Hún þarf að starfa fyrir mun opnari tjöldum en tíðkast hefur um ríkisstjórnir á Íslandi.

Því þessi ríkisstjórn mun fara fram á að þjóðin axli sársaukafullar byrðar - byrðar sem hún ber ekki nema að mjög litlu leyti sjálf sök á - og til að við þolum þær verðum við ævinlega að vita sannleikann í hverju máli, og vita að ekki sé verið að makka eitthvað dónalegt bak við þil.

Þetta atriði er mjög mikilvægt. Það eru ekki runnir upp aftur þeir "góðu gömlu dagar" þegar ráðherrar gátu farið sínu fram án þess að það kæmi þjóðinni að ráði við.

Raunar finnst mér margt mæla með því að þegar breytingar verða gerðar á stjórnskipan, þá verði skipt um starfsheiti ráðherranna. Það er ekki bara orðhengilsháttur; það skiptir máli hvaða orð eru notuð, og hvernig.

Þá má líka láta fara í taugarnar á sér hversu "venjulega" var staðið að vali þeirra þjóna okkar sem enn heita ráðherrar.

Efstu menn í kjördæmum, þeir sem "lengi hafa beðið" ... svona á ekki að velja ráðherra á þessum síðustu og verstu tímum.

Heldur velja eingöngu þá sem hæfastir eru.

Og það má alveg sérstaklega láta fara í taugarnar á sér að Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir skuli nú vera gerð að forseta Alþingis í sárabætur fyrir að hafa misst ráðherrastól.

Þetta segi ég ekki Ástu Ragnheiði til hnjóðs. Ég ber að ýmsu leyti virðingu fyrir henni sem stjórnmálamanni.

En átti ekki að auka veg og virðingu Alþingis? Eitt gott skref þar hefði verið að afleggja þennan leiðinlega sið að forseti þingsins sé fallinn ráðherra sem fær embættið sem plástur á sárin sín.

Ásta Ragnheiður verður að minnsta kosti að sýna strax mikinn skörungsskap í sínu nýja starfi - og vilja til sjálfstæðis gagnvart framkvæmdavaldinu, til að réttlæta þennan gjörning.

Þannig má láta ýmislegt fara í taugarnar á sér við þessa nýju ríkisstjórn.

Og að því marki sem ég læt til mín heyra um þjóðfélagsmál, þá áskil ég mér vitaskuld allan rétt til að gagnrýna þessa stjórn svo harkalega sem þurfa þykir.

En samt ... en samt ... já, samt, þá bregður svo við að líklega í fyrsta sinn á minni löngu löngu ævi, þá get ég sagt tiltölulega fyrirvaralítið: "Ég styð ríkisstjórnina."

Það er nýlunda.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?