Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hefur sýnt viðleitni í þá átt að vilja hugsa málefni RÚV upp á nýtt.
Það er gott.
Ég efast ekkert um að Þorgerður Katrín fyrrverandi ráðherra og Páll Magnússon útvarpsstjóri hafi haft gott eitt í hyggju með þeim breytingum á Ríkisútvarpinu sem þau stóðu fyrir.
En burtséð frá þeim mögulegu "tæknilegu" göllum sem þær breytingar höfðu í för með sér, þá var á þeim einn stór meinbugur.
Þær snerust bara um "fyrirtækjavæðingu" RÚV og stjórnsýslu þess sem fyrirtækis. Það var reyndar helsti gallinn: litið var á RÚV sem hvert annað fyrirtæki. Með tilheyrandi háum launum fyrir æðstu stjórnendur.
En Ríkisútvarpið er alls ekki hvert annað fyrirtæki.
Tilverugrundvöllur þess felst í því menningarlega hlutverk sem það á að gegna, engu öðru.
Og það hlutverk hefur orðið útundan.
Blogg
RÍKISÚTVARPIÐ
20:54 › 1. maí 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
