AMX fréttavefur hægri manna skreytir sig óhikað með orðunum "Fremsti fréttaskýringavefur landsins".
Það mundi líklega vera bannað, ef netið lyti sömu lögmálum og aðrir fjölmiðlar og fyrirtæki almennt. Ég veit ekki betur en þeim sé bannað að monta sig svona með hástigi lýsingarorða.
En ef einhver nennti að kæra AMX fyrir þetta gætu þeir höfðingjarnir eflaust bent á að vefurinn þeirra sé vissulega fremstur í stafrófinu.
Og það má til sanns vegar færa ef mér skjöplast ekki.
En það sem ég vildi sagt hafa: Í dag hélt ég að slegið hefði út í fyrir þeim AMX mönnum.
Þeir birtu nefnilega frétt um aðalfund FL Group sem haldinn sé í dag.
Haaa? FL Group? Var það kompaní ekki löngu dautt? Eða búið að skipta því milli Baugs annars vegar og Valhallar hins vegar?
Og bæði þau apparöt sjálf komin meira eða minna í þrot.
Og var alla vega ekki löngu búið að leggja niður nafnið á FL Group? Eftir að Jón Ásgeir kom til skjalanna; hann hefur eins og við vitum svo gaman af því að skipta um nöfn á fyrirtækjum.
Nei, svo virðist vera sem FL Group sé ennþá til.
Og meira að segja einhver Júlíus Þorfinnsson á kaupi við að vera upplýsingafulltrúi fyrirtækisins!
Detta mér nú allar dauðar lýs úr höfði.
FL Group er eins og einhver draugur aftan úr löngu liðinni fortíð.
Blogg
DRAUGUR FORTÍÐARINNAR
18:41 › 30. apríl 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
