ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

LOKAORÐ UM EVRÓPUSAMBANDIÐ

07:28 › 27. apríl 2009


Krónan er ónýtur gjaldmiðill sem nýtur einskis trausts.

Það er hugsanlega hægt að byggja hana upp aftur en það mun verða afar dýrt og tímafrekt. Auk þess er alls óvíst að það takist.

Og það mun ævinlega fylgja því mikil áhætta að basla hér í Ballarhafi með svo lítinn gjaldmiðil.

Örfáa aðra kosti eigum við, og þann helstan að ganga í Evrópusambandið og taka upp evru.

Því fylgja líka ýmsir aðrir kostir - flestir lúta að auknum stöðugleika og kostum af samstarfi við aðrar þjóðir.

En jafnframt fylgja eflaust inngöngu í Evrópusambandið ýmsir ókostir.

Þetta er þó augljóslega möguleiki sem lífsnauðsynlegt er að taka afstöðu til í núverandi þrengingum okkar.

Og mjög undarlegt að vera eitthvað að tefja tímann.

Að "skilgreina samningsmarkmiðin" gæti tekið svona kortér, trúi ég.

Það þarf bara að smala saman hópi ESB-sérfræðinga, láta þá nefna öll blæbrigði á samningum ESB við aðildarríki sína - og senda svo nefnd okkar harðasta samningafólks út til Brussel með ýtrustu kröfur.

Að sjálfsögðu förum við fram á sem mest og með sem minnstum tilkostnaði - flóknara þarf það ekki að vera.

Þegar hópur samningamanna kemur heim vitum við um hvað málið snýst og getum tekið ábyrga afstöðu - fyrr ekki.

Fyrr þýðir ekki að sitja hér og segja: Samningarnir við ESB munu misheppnast. Evrópusambandið mun svindla á okkur. Þeir munu hirða af okkur auðlindirnar (þó þess séu engin dæmi að ESB hafi hirt auðlindir af þjóðum). Og svo framvegis.

Fyrr en búið er að semja, þá eru allar okkar umræður hér markleysa - og eyða tíma okkar frá brýnum verkefnum.

En hver dagur með ónýtri krónu er hins vegar dýr.

Til hvers að bíða? Ég bara skil það ekki. Bíða eftir hverju?

Liggur ekkert á af því við fáum hvort sem er ekki evru fyrr en eftir nokkur ár, já?

Þegar kviknar í hjá fólki, á sem sagt ekki að hringja á hjálp af því slökkviliðið kemur hvort sem er ekki fyrr en eftir tuttugu mínútur?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?