ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SENDA NÚ ÞESSA FÖKKINGS UMSÓKN, TAKK FYRIR!

09:23 › 26. apríl 2009


Niðurstöður kosninga eru aldrei nægilega afgerandi.

En nokkrir hlutir liggja fyrir.

Héðan í frá væri fáránlegt fyrir VG að streitast á móti umsókn að aðild að ESB. Senda nú þessa fökkings umsókn, takk fyrir. Strax. Svo við getum farið að hugsa um eitthvað annað.

Samfylkingin stóð sig vel. Það er þrennu að þakka. Orðstír Jóhönnu Sigurðardóttur, áherslunni á ESB og því að flestir Íslendingar eru einhvers konar jafnaðarmenn í skoðunum. Fram að þessu hafa ótrúlega margir þeirra fundið sér ból í Sjálfstæðisflokknum; nú stendur það upp á Samfylkingarmenn að hrekja þá ekki aftur í faðm íhaldsins.

Og vel að merkja: Gamlar grúpíur Tonys Blair, sem kynnu að vilja þakka sér árangur Samfó, ættu að hugsa sinn gang. Þetta var ekki þeim að þakka.

VG stóð sig vel. Ef ekki hefðu komið til vægast sagt klaufaleg ummæli Kolbrúnar Halldórsdóttur og alveg óþarflega ósveigjanlegar yfirlýsingar Steingríms í ESB-málum er líklegt að flokkurinn hefði fengið 2-3 þingmenn í viðbót. Og flokkur sem eykur fylgi sitt verulega í hverjum kosningum á fætur öðrum er bara í mjög góðum málum.

Hann þarf nú að semja sig að því að vera orðinn stór og hafa völd, en vera ekki fremur lítill andstöðuflokkur. Katrín Jakobsdóttir mun vafalaust fagna atbeina þeirra Svandísar og Guðfríðar Lilju við að þróa mentalítet flokksins, en Ögmundur verður samviska flokksins enn um sinn.

Sjálfstæðisflokkurinn er kominn í leyfi. Allir hafa gott af því. Og nú þarf Sjálfstæðisflokkurinn að gera upp við fortíð sína. Hann er ekki búinn að því, þó hver sjálfstæðismaðurinn af öðrum hafi staglast á því undanfarið. Langt frá því. Hver ætlar t.d. að flytja "leyniræðu Krústjovs"? - nema helst ekki í leyni. Þorgerður Katrín?

Því er ekkert að neita að Framsóknarflokkurinn má sæmilega við una. Það verður verkefni hans að finna sér hlutverk andspænis ríkisstjórnarflokkunum.

Ég ber djúpa virðingu fyrir Borgarahreyfingarfólki en ég verð nú að viðurkenna að ég skildi ekki alveg talið um hinn "stórkostlega sigur". Ný framboð hafa iðulega fengið þetta fylgi eða jafnvel meira. Ég vona að hreyfingin muni einhenda sér í baráttu fyrir stjórnlagaþingi, svo er bara að halda árunni hreinni!!

Og eitt þarf ríkisstjórnin að muna.

"Fagráðherrarnir" Gylfi og Ragna setja mjög góðan svip á stjórnina.

Þau ættu að halda sínum störfum.

Stjórnarflokkarnir geta ekki núna bara komið með sína pólitísku pótintáta og haldið að nú þurfi ekki lengur að "friða" fólk með svona "uppátækjum".

Það er ekki "business as usual" ennþá.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?