ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

NEI, ÓLAFUR STEFÁNSSON

09:00 › 25. apríl 2009


Ég ber að sjálfsögðu eins og aðrir Íslendingar óendanlega virðingu fyrir Ólafi Stefánssyni handboltamanni.

Hins vegar þykir mér undarlegt að lesa pistil eftir hann í Mogganum í morgun, þar sem hann hvetur fólk til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn.

Í fyrsta lagi hefur Ólafur verið í útlöndum í áratug, svo ég veit ekki alveg hvort hann er hann er rétti maðurinn til að segja eitthvað markvert um íslenskt samfélag síðustu árin.

Látum það samt vera. Hann getur vel hafa fylgst reglulega vel með.

En í öðru lagi gengur rökstuðningur Ólafs fyrst og síðast út á það að sjálfstæðismenn eigi að "standa með sínu liði gegnum þykkt og þunnt".

Það er eins og hann haldi að Sjálfstæðisflokkurinn hafi "lent í" að tapa nokkrum leikjum í handbolta. Og nú skipti mestu máli að standa með flokknum eins og íþróttafélagi.

Nei Ólafur. Sjálfstæðisflokkurinn ber stærstan hluta ábyrgðarinnar á því algjöra hruni sem varð í íslensku samfélagi síðastliðið haust og íslensk alþýða mun lengi þurfa að súpa seyðið af.

Nú snýst málið ekki um að "standa með" einhverjum flokki, og það meira að segja flokki sem reynst hefur gjörspilltur og vanhæfur, heldur að standa með íslensku þjóðinni.

Tryggð er góð, það vitum við, en tryggð sýnir maður fólki, en ekki spilltum stjórnmálaflokki. Og svona tryggð við stjórnmálaflokka er því miður eitt af því sem hefur komið okkur í þá stöðu sem við erum í.

Alltof margir kjósendur Sjálfstæðisflokksins hafa síðustu 18 árin kosið flokkinn sinn af gamalli tryggð í stað þess að setja eðlileg spurningamerki við hann og gjörðir hans.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?