ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

BURT MEÐ ÞÁ!

10:49 › 25. apríl 2009

Grein eftir sjálfan mig í Mogganum í morgun, sem ég leyfi mér að birta hér líka. Það er nú kosningadagur.

Í kosningunum nú gefst fágætt tækifæri í íslenskri stjórnmálasögu. Því nú er lag til að kjósa til langframa ríkisstjórn án Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.

Og það tækifæri ættum við ekki að láta ónotað.

Í 80-90 ár hafa þessir tveir flokkar ráðskast með stjórn landsins eins og hún sé þeirra eigin leggur og skel. Og núna, þegar við lítum í kringum okkur, sjáum við að það er nóg komið.

Í 80-90 ár hafa þeir talið okkur trú um að festa og stöðugleiki séu ómöguleg í samfélaginu án þeirra. Heyr á endemi! Allan þennan tíma hafa festa og stöðugleiki verið víðsfjarri íslensku samfélagi. Dýfur og svokölluð góðæri hafa skipst á, og endað nú með hinu algjöra hruni.

Þetta er ekki náttúrulögmál. Þetta er afleiðing sjálfumglaðrar og græðgisfullrar stjórnar þessara tveggja flokka.

Þetta er afleiðing þess að við höfum leyft Skugga-Sveini Sjálfstæðisflokksins og hans Katli skræk í líki Framsóknarflokksins að vaða á skítugum skónum yfir samfélagið. 

Ísland sem markaðstorg

Þessir tveir flokkar hafa gert Ísland að markaðstorgi þar sem siðferði og sjálfsvirðing eru til sölu ekki síður en feitt kjet og háar stöður; þeir hafa gegnsýrt samfélagið klíkuskap sínum og spillingu og talið okkur trú um að svona ætti það að vera; þeir hafa nú síðustu tvo áratugina aukið svo stéttaskiptingu og misskiptingu þjóðarauðsins að þess eru engin dæmi í vestrænu samfélagi.

Frá 1993-2007 juku fáeinar ríkustu fjölskyldur landsins hlut sinn í heildartekjum Íslendinga úr fjórum prósentum í tuttugu!

Og nú sitjum við eftir í súpunni, og það eina sem við getum gert er að veita þessum flokkum þá ráðningu að þeir gleymi henni aldrei.

Ef þeir sleppa tiltölulega vel frá kosningunum nú munu þeir verða fljótir að sleikja sár sín og hugsa sem svo:

“Þetta fór nú ekki eins illa og við var búist. Við eigum ennþá hljómgrunn. Við höfum enn tækifæri til að ná vopnum okkar. Við gætum enn komist í valdastóla – ekki gleyma því að við eigum þrátt fyrir allt enn auðuga bakhjarla, þótt nú beri lítið á þeim í skuggunum.”

Og þá mun ekki líða á löngu þar til kolkrabbar og smokkfiskar verða aftur farnir að teygja anga sína um allt það nýja samfélag sem við ætlum nú að reisa úr rústum þess gamla. 

Þeir verða að bíða

En þeir Skugga-Sveinn og Ketill skrækur hafa ekki aðeins lemstrað efnahag landsins og aukið misrétti svo svívirðilega; þeir innleiddu líka samfélag þar sem þöggun og ótti réðu ríkjum. Ég veit að við erum fljót að gleyma, en muniði ástandið fyrir svona 5-8 árum? Gagnrýni á valdhafa var illa séð, enginn mátti amast við þeim hugsunarhætti sem þeir höfðu innleitt í samfélagið.

En nú höfum við tækifæri til að verða frjáls. Við höfum verk að vinna, við þurfum að endurreisa heilt samfélag og við skulum fyrir alla muni gera án þeirra sem lögðu það í rúst.

Ég veit að innan bæði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins er ágætt fólk sem hefur sitthvað til málanna að leggja – en það fólk verður að bíða. Nú þurfum við að hreinsa til og skúra og skrúbba og bóna, og við þurfum að þola ýmsar þrengingar meðan hreinsunin stendur yfir – og við þurftum að reyna að steypa okkur nýjan siðferðisgrunn fyrir samfélagið.

Og það gerum við án þeirra.

Við getum ekki leyft þeim sem með siðleysi sínu svívirtu okkur að taka þátt í að smíða okkur nýjar siðareglur. 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?