Í framhaldi af nöturlegri grein í Helgarblaði DV um bruðlið hjá FL Group, þá datt mér í hug frásögn gestkomandi manns þegar FL Group opnaði skrifstofu í Kaupmannahöfn snemma árs 2007.
Þá lék enn allt í lyndi og hlutabréfin á uppleið. Brjálæðislegt tapið ekki komið í ljós.
Maðurinn sem sagði mér frá þessum var sem sagt gestkomandi þarna og blöskraði bruðlið.
Og þegar langt var liðið á kvöld datt alveg af honum andlitið.
Eftir heilmikið ball var fjör heldur betur farið að færast í leikinn.
Og þá stukku Hannes Smárason og helstu samstarfsmenn hans og vinir allir upp á borð og dönsuðu eins og vitlausir menn.
Lyftu öðrum hnefanum og örguðu hamslausir af fögnuði:
"Útrásin! Útrásin! Útrásin! Útrásin!"
Blogg
"ÚTRÁSIN! ÚTRÁSIN! ÚTRÁSIN! ÚTRÁSIN!"
09:53 › 24. apríl 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
