ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

LIGGUR VIÐ SLAGSMÁLUM UM ÁLVER Á BAKKA - Í 10 ÁRA AFMÆLI!

19:43 › 24. apríl 2009


Drottinn minn dýri!

Hér sit ég ásamt tíu tíu ára strákum í tíu ára afmæli og nú eiga sér stað fjörugar umræður um hvort evran hefði bjargað okkur við bankahrunið í haust.

Og ábyrgð Davíðs Oddssonar á öllu saman.

Sjálfur þegi ég sem fastast.

Og tek alls engan þátt í þessu.

En nú liggur við slagsmálum um álver á Bakka.

Mikil er ábyrgð Hrunsmanna.

Þetta eru tíu ára gamlir strákar, í guðs bænum!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?