Illugi nafni minn Gunnarsson er á auglýsingaskiltum út um borg og bý undir fyrirsögninni:
"Eðlilegt viðskiptaumhverfi."
Þið munið hvað karlinn sagði: Nú mundi ég hlæja ef ég væri ekki dauður. Það liggur við að ég fari að fjalla um Sjóð 9.
Í dag berast fréttir af einu ágætu fyrirtæki sem ætlar að flýja hið "eðlilega viðskiptaumhverfi" sem Sjálfstæðisflokkurinn skapaði á 18 ára samfelldri stjórnartíð sinni.
Flugfélagið Primera. Það er á leiðinni til Danmerkur. Sjá hér.
Og fleiri eru vafalaust á leiðinni.
Hugsanlega hægir eitthvað á fyrirtækjaflóttanum ef við kveðum nógu skýrt að orði um að við ætlum að losa okkur sem allra allra fyrst við dragúldið líkið af krónunni.
Sem nú er orðið svo rotið að fýluna af því leggur um víða veröld. En óvíst hvort meira að segja það dugir.
Takk Sjálfstæðisflokkur. Takk Davíð. Takk Geir.
Blogg
FÝLUNA LEGGUR UM VÍÐA VERÖLD
14:09 › 24. apríl 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
