Ég nenni yfirleitt ekki að leggja mig eftir fréttum af skoðanakönnunum.
Þetta er samt athyglisvert.
Að Sjálfstæðisflokkurinn kunni að tapa gríðarlegu fylgi í sjálfu höfuðvígi sínu í Kraganum.
Og VG standi þar með pálmann í höndunum.
Ögmundur Jónasson fór niður í annað sætið á framboðslistanum en Guðfríður Lilja Grétarsdóttir tók það efsta, og þessi gambítur virðist ætla að skila árangri.
Enda er það svo, eins og ég hef oft sagt, fáir menn á Alþingi eiga fremur skilið að sitja þar en Ömmi frændi.
Það var satt meðan hann virtist vera hrópandi sósíalismans í eyðimörk auðmagnsins. Og er enn frekar satt núna.
Og Guðfríður Lilja er náttúrlega framtíðar pólitíkus.
Blogg
ÖMMI FRÆNDI OG GUÐFRÍÐUR LILJA AÐ MEIKA ÞAÐ?
11:24 › 23. apríl 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
