08:58 › 23. apríl 2009
Nú keppast þingmenn við að lýsa því yfir að þeir muni með mestu ánægju - já, fullir hamingju og gleði - opna prófkjörsbókhaldið sitt.
Því ekkert vilji þeir í rauninni frekar!
Bara ef allir geri það líka.
Og enginn vill byrja.
Ég veit ekki hvernig á að leysa þetta þrátefli.
Það væri kannski hægt að stefna þingmönnunum öllum niður á Alþingi, með prófkjörsbókhaldið í möppu, og svo telur einhver upp að þremur og þá skella allir pappírunum sínum fyrir framan Alþingishúsið.
Allir í einu.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
