Ég get eiginlega ekki stillt mig um að benda á þessa klausu af heimasíðu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar.
Þarna svarar hann spurningu Mannlífs um hver sé merkasti eða áhrifamesti núlifandi Íslendingurinn.
Þetta er skrifað seinni partinn í júní 2008.
Ég endurtek: Seinni partinn í júní 2008!
Hannes telur merkustu Íslendingana vera þrjá: Björgólf Guðmundsson, Davíð Oddsson og Geir Hilmar Haarde.
Rökstuðningurinn er svo stórkostlegur að hver einasta setning er eiginlega tótal snilld.
Njótið:
"Björgólfur Guðmundsson er ekki aðeins einn ríkasti Íslendingur, sem
uppi hefur verið, eigandi banka og margra annarra fyrirtækja og
fjölmiðla, heldur hefur hann líka öðlast mikið siðferðilegt áhrifavald.
Hann er góðgjarn og skynsamur, og menn hlusta á hann.
Hann er öðrum
fyrirmynd, af því að hann er lifandi dæmi um það, að menn geta ratað í
mikla erfiðleika, en brotist út úr þeim aftur og jafnvel orðið meiri og
betri menn.
Davíð Oddsson er svo öflugur maður, að hann hefur
ekki glatað áhrifum sínum, þótt hann sé ekki lengur í fylkingarbrjósti
í stjórnmálum. Rætur áhrifa hans eru tvíþættar.
Í fyrsta lagi nýtur
hann mikillar virðingar og trausts þorra þjóðarinnar, þótt orðastrákar
á kaupi hjá óvinum hans reyni að gera lítið úr því. Menn vita, hversu
heill Davíð er og heiðarlegur, hreinn og beinn og hræsnislaus.
Í öðru
lagi gegnir Davíð auðvitað enn lykilstöðu sem bankastjóri Seðlabankans.
Hann hefur átt drjúgan þátt í því, að bankarnir virðast vera að komast
út úr þeirri kreppu, sem þeir voru í. Vandlega er hlustað á Davíð í
hinum alþjóðlega peninga- og bankaheimi.
Fátt væri fjær Davíð en að
láta gamlar væringar stjórna sér, þegar til kastanna kemur.
Geir
H. Haarde hefur á stuttum ferli sínum sem forsætisráðherra bætt mjög
við það traust, sem hann vann sér sem fjármálaráðherra og
utanríkisráðherra.
Hann er friðsamur og laginn, og þess vegna fer minna
fyrir áhrifum hans en margra annarra, sem hærra gala. En hann er fastur
fyrir, þegar á reynir.
Öll þjóðin veit, þegar hún sér Geir, að hann
vill vel og vinnur vel. Hann hefur líka góða menntun og er ákaflega
frambærilegur. Það er til slíkra manna, sem leitað er á úrslitastundum."
Svo mörg voru þau orð. Það er erfitt að gera upp á milli gullkornanna, en ég er sérstaklega ánægður með þetta um Davíð: "Hann hefur átt drjúgan þátt í því, að bankarnir virðast vera að komast
út úr þeirri kreppu, sem þeir voru í. Vandlega er hlustað á Davíð í
hinum alþjóðlega peninga- og bankaheimi. Fátt væri fjær Davíð en að
láta gamlar væringar stjórna sér, þegar til kastanna kemur."
Blogg
SNILLDARVERK HANNESAR
11:42 › 22. apríl 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
