Eins og Páll Ásgeir bendir á í þessum pistli, þá var það ekki mjög fyndið hjá Atla Gíslasyni þegar hann gerði tilraun til að slá ágreining milli stjórnarflokkanna um ESB út af borðinu með hótfyndni um að flokkarnir væru "sammála um að vera ósammála".
Spurningin um afstöðu Íslendinga til ESB hefur lengi verið kæfð í fæðingu með einhverjum svona "rökum".
Að þessi spurning væri ekki tímabær. Að málið væri ekki á dagskrá. Að það lægi ekkert á.
Núna er spurningin tímabær. Frasar eins og sá sem Atli bauð upp á duga ekki.
Málið er svo sannarlega á dagskrá. Það snýst um nýja peningastefnu.
Og það liggur mjög mikið á.
Af einhverjum dularfullum ástæðum hafa Vinstri grænir hökt í hjólfari Sjálfstæðisflokksins í Evrópumálum allt frá stofnun flokksins.
Nú hef ég sterkan og rökstuddan grun um að öflugt fólk innan flokksins sé alveg til í að komast upp úr því hjólfari.
En þá er eins og það þurfti fyrst að "bjarga andlitinu" - les: breiða yfir sinnaskiptin - með því að gefa engin sérstök svör en bjóða upp á hina einkennilegu tvöföldu atvkæðagreiðslu sem gerir ekkert annað en eyða tíma, peningum og orku, sem betur væri varið í annað.
Ég er búinn að benda mínum góðu vinum í VG á það frá byrjun - beitið ykkur fyrir umsókn, sendið menn að semja í fullri alvöru við ESB, takið svo afstöðu þegar niðurstaðan liggur fyrir, og greiðið þá atkvæði gegn aðildinni ef ykkur líst ekki á blikuna.
En ekki tefja tímann.
Íslensk pólitík má ekki lengur snúast um að "bjarga andliti" stjórnmálamanna og flokka.
Blogg
EKKI BJARGA ANDLITINU!
09:48 › 21. apríl 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
