Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að svara þeim orðum sendiherra ESB að fullyrðingar flokksins um að hægt sé að taka upp evru einhliða með stuðningi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins séu "rent nonsens".
Er leiðir til þess að Bjarni Benediktsson stendur á strætóskýlum Reykjavíkur og vafalaust víðar afhjúpaður sem bullukollur.
En Björn Bjarnason svarar höstugur í bragði:
"Percy Westerlund, sendiherra ESB, réðst ... dólgslega á
Sjálfstæðisflokkinn og af því alkunna yfirlæti, sem sendimenn
Evrópusambandsins telja sér sæma að sýna stjórnmálaflokkum og heilum
þjóðum, ef menn beygja sig ekki þegjandi undir Brusselvaldið."
Réðst ...?
Og ekki bara það, heldur: Réðst dólgslega.
Nú vita það allir sem vilja vita að "leið" Sjálfstæðisflokksins er bara bull. Mun aldrei koma til mála.
Að benda á þann sannleika heitir hins vegar á máli Sjálfstæðisflokksins að "ráðist sé dólgslega" á flokkinn.
Best að punkta þetta bak við eyrað.
Blogg
DÓLGSLEGA RÁÐIST Á SJÁLFSTÆÐISFLOKKINN
09:00 › 21. apríl 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
