Þetta er náttúrlega athyglisvert. Alltaf gaman að spara gommu af milljörðum, jafnvel þótt það verði á 40 árum.
Ég hef náttúrlega engar forsendur til að meta hvort þetta er rétt.
Aftur á móti ætla ég að leyfa mér að stinga upp á einu, úr því Landspítalinn er til umræðu.
Frá því ég man eftir mér hafa tré hulið framhlið Landspítalans sem ætti að blasa við frá Hringbraut.
Venjulega er ég mjög hlynntur trjám, en um daginn rann allt í einu upp fyrir mér að þessi tré ætti að höggva.
Og leyfa húsinu að njóta sín.
Þá mun koma í ljós að framhlið Landspítalans virðist sniðin nákvæmlega eftir Buckingham-höll í London.
Ég get svosem ekki sagt að húsið sé kannski beint fallegt ... og þó ... Ja, það er alla vega tilkomumikið. Og segir sína sögu um arkitektúr á Íslandi skömmu fyrir miðja síðustu öld.
Og umfram allt er engin ástæða til að fela húsið bak við öll þessi tré.
Blogg
BURT MEÐ TRÉN!!
13:25 › 21. apríl 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
