Valgerður Bjarnadóttir er einn gáfaðasti stjórnmálamaður landsins, ég held mér sé alveg óhætt að segja það.
Hún hefur síðustu daga verið að skrifa pistla á Eyjuna þar sem hún fer skilmerkilega í gegnum það af hverju hún telur brýnt, já, lífsnauðsynlegt fyrir okkur Íslendinga að sækja um aðild að Evrópusambandinu.
Hér er síðasta greinin, hinar eru auðfinnanlegar þarna líka.
Þetta eru fínar greinar og rök Valgerðar sannfærandi, enda er hún öfgalaus og skynsöm.
Það sem merkilegast er við þessar greinar er að andstæðingar aðildar hafa ekki skrifað neitt þessu líkt, svo ég muni.
Þeir slá fram hinu og þessu en yfirleitt finnst mér skorta almennilegan rökstuðning.
Venjulega enda þeir í heitstrengingum um fullveldið, og því að "við munum aldrei ná viðunandi samningum".
Það mun ekki koma neinum á óvart að ég er hjartanlega sammála Valgerði um að rétt sé að sækja um aðild. Hún er nokkuð sannfærð um það fyrirfram, sýnist mér, að niðurstaða aðildarviðræðna verði okkur hagstæð. Ég er ekkert alveg viss um það. En ég segi það í þúsundasta sinn - mér finnst algjör tótal fásinna að sækja ekki um, og það sem fyrst.
Blogg
ALGJÖR TÓTAL FÁSINNA
18:55 › 21. apríl 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
