ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

UNDARLEGUR MAÐUR, BENEDIKT

13:13 › 20. apríl 2009


Benedikt Jóhannesson er undarlegur maður.

Hann gengur fram fyrir skjöldu til að lýsa því sem hann telur vera mesta hagsmunamál Íslendinga - sumsé að ganga í Evrópusambandið og taka upp evru.

Hann fjallar um það skilmerkilega og æsingalaust, nánast tregafullur.

Og hann tekur svo djúpt í árinni að halda því fram að ef við stígum ekki þegar í stað ákveðin skref til að ganga til liðs við ESB, þá blasi við okkur annað hrun.

Og miklu verra.

Þetta er Benedikt svo mikið kappsmál að hann stofnar vefsíðuna sammala.is til að vinna þessu ahugamáli sínu fylgi - og hann eyðir stórfé í að auglýsa síðuna og halda henni að stjórnmálamönnum.

Eða ber hann ekki sjálfur hluta af auglýsingakostnaðinum?

En svo lýsir Benedikt því yfir að hann ætli þrátt fyrir allt þetta að kjósa stjórnmálaflokk sem alls ekki hefur á stefnuskrá sinni að ganga í margnefnt Evrópusamband.

Og hefur meira að segja þvælst fyrir því á alla lund upp á síðkastið.

Sjálfstæðisflokkinn.

Benedikt gefur sem sagt atkvæði sitt flokki sem beint og óbeint ætlar að stuðla að því "öðru hruni" sem hann óttast að verði niðurstaðan ef við drífum okkur ekki í ESB.

Af því að hann "á svo margt sameiginlegt með sjálfstæðismönnum" eins og hann orðaði það - svona nokkurn veginn.

Hann ætlar að kjósa þá sem eru á móti því sem hann telur sjálfur langstærsta hagsmunamál þjóðarinnar.

Ef fólk fylgir fordæmi hans verður hrunið þá líklega niðurstaðan.

Undarlegt.

Mjög, mjög undarlegt.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?