ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HVAÐ VERÐUR UM GYLFA OG RÖGNU?

14:49 › 20. apríl 2009


Gylfi Magnússon hefur slegið í gegn sem viðskiptaráðherra.

Ég kann ekki hagfræði svo ég get ekki metið hin fínni blæbrigði allra hans gjörða. En hann býður af sér mjög góða þokka og það er satt að segja ótrúlegur léttur að sjá íslenskan ráðherra sem virðist kunna sitt fag jafn vel og Gylfi gerir.
Og talar mannamál!

Það var lík mjög hressandi að sjá viðtöl við hann í erlendum fjölmiðlum um daginn.

Það hefur minna borið á Rögnu Árnadóttur, hinum "faglega" ráðherranum, en hún virðist vita sínu viti.

Og það er í sjálfu sér gott að hafa í ríkisstjórninni fólk sem ekki hefur farið "fjallaflokksleiðina" í embættið.

Nú heyrir maður að það sé svo mikill þrýstingur frá óbreyttum þingmönnum stjórnarflokkanna í að komast í ráðherraembætti að Gylfa og Rögnu verði líklega fórnað, haldi ríkisstjórnin áfram samstarfi sínu eftir kosningar.

Af því tilefni vil ég aðeins segja:

Ágætu þingmenn!

Það kann að vera fyrir hendi þrýstingur frá ykkur að komast í ráðherrastól. En það er ekki afdráttarlaust kappsmál okkar kjósenda að þið bætist á ráðherralistann.

Við viljum bara fá hæft fólk.

Þið, ágætu þingmenn, skuluð ekki ímynda ykkur að eftir kosningar verði bara "business as usual" þar sem eðlilegt þykir að þingmenn oti sínum tota og manípúleri sér í ráðherrastól með öllum ráðum.

Nei, ónei. Við viljum bara fá hæft fólk.

Því viljum við fá að vita FYRIR kosningar hvað verður um Gylfa og Rögnu? Hvort þau munu endilega þurfa að víkja fyrir einhverjum framapoturum úr stjórnmálaflokkunum?






ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?