ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

FJÖLMIÐLUN Á FACEBOOK

11:55 › 20. apríl 2009


Merkilegt var að sjá frétt Láru Ómarsdóttur um dópmálið á Djúpavogi í sjónvarpsfréttum RÚV í gærkvöldi.

Þá vissu fréttamenn greinilega ennþá ansi lítið hvað væri að gerast. Lára greip því til þess ráðs að fara á Facebook.

Þar fann hún íbúa á Djúpavogi sem var að lýsa hasarnum fyrir vinum sínum. Löggur á ferð, þyrlur á sveimi, etc.

Íbúinn sagði svo eitthvað á þessa leið: "Þið sjáið þetta örugglega betur í fréttunum í sjónvarpinu í kvöld."

En í fréttunum um kvöldið var bara mynd af Facebook-síðunni og lesið upp af henni.

Fjölmiðlun svolítið að breytast, ha?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?