ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ENGIN SVÖR, UTAN EITT

17:57 › 20. apríl 2009


Ég ætla nú ekki að þykjast vera mikilvægari en ég er, en mér finnst samt alveg ástæðulaust af talsmönnum flokka og framboða hér á landi að sniðganga litlu Trésmiðjuna mína alveg!!

Í fyrradag beindi ég tveimur spurningum til forystumanna framboða og flokka um stefnu þeirra í sambandi við jöfnun atkvæðisréttar.

Sjá hér.

Ég birti þessar spurningar hér á bloggsíðunni og sendi þær líka í tölvupósti til formanna flokkanna og talsmanna annarra framboða.

Daginn eftir barst mér svar frá Borgarahreyfingunni, þetta hér.

Jóhanna Sigurðardóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Bjarni Benediktsson, Guðjón Arnar Kristjánsson og Ástþór Magnússon hafa hins vegar ekki svarað.

Ég er soldið móðgaður, því mér finnst þetta mikilvægt mál sem flokkarnir hafa alveg sleppt að ræða í kosningabaráttunni.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?