ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

EINN OG HÁLFUR FÓTBOLTAVÖLLUR

09:32 › 20. apríl 2009


Þann 16. júlí 1950 fór fram fótboltaleikur í Rio de Janeiro í Brasilíu.

Þetta var í reynd úrslitaleikur heimsmeistaramótsins og þarna kepptu heimamenn við Úrúgvæ.

Úrúgvæar unnu þarna einn óvæntasta sigur samanlagðrar heimsmeistarakeppninnar í fótbolta, en það var nú ekki það sem ég ætlaði að minnast á núna.

Heldur hitt að áhorfendur voru 199.954 talsins.

Rétt tæplega tveir þriðju íslensku þjóðarinnar í dag voru þarna á einum fótboltaleik.

Þetta er áminning um hve fá við erum.

Við gætum komist fyrir á einum og hálfum fótboltavelli - að minnsta kosti sé um að ræða Maracanavöll í Rio!

Svona lítil þjóð hlýtur að geta komist að samkomulagi. Svona lítil þjóð hlýtur að geta unnið saman.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?