ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

AF HVERJU EKKI AÐ LÆKKA VEXTINA STRAX?

15:55 › 20. apríl 2009


Nú er allt útlit fyrir að verðbólgan lækki mjög hratt næstu mánuði. Hagfræðideild Landsbankans spáir því að hún teljist 11,1 prósent á ársgrundvelli í apríl.

Það þýðir víst í raun að hún er orðin nánast engin; gott ef verðhjöðnun er ekki komin til skjalanna.

Alla vega er alls engin afsökun lengur fyrir hinum háu vöxtum.

Seðlabankinn er vissulega byrjaður að lækka þá, en virðist ætla að fara mjög varlega í sakirnar. Það er kannski skiljanlegt að vilja fara gætilega, en ég held að nú sé kominn tími til að stíga stærri og djarfmannlegri skref.

Er eitthvað því til fyrirstöðu að lækka vexti strax? Næsti formlegi vaxtaákvörðunardagur mun vera í byrjun maí - til hvers þarf að bíða eftir honum?

Hver einustu mánaðamót með núverandi okurvöxtum eru fyrirtækjum og einstaklingum skelfileg byrði.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?