ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SVAR FRÁ BORGARAHREYFINGUNNI

11:00 › 19. apríl 2009


Í gær lagði ég fyrir formenn og/eða talsmenn flokka/framboða tvær spurningar um jöfnun atkvæðisréttar. Eitt svar hefur enn borist, frá Jóhanni Kristjánssyni kosningastjóra Borgarahreyfingarinnar.

Það er svohljóðandi:

"Telur þú sjálfur að gera eigi landið allt að einu kjördæmi - eða hugsanlega jafna atkvæðisrétt ALGERLEGA með öðrum hætti?"

Svar: Borgarahreyfingin vill jafna atkvæðisvægi á hvern kjósanda, þ.e. hvert atkvæði gildi það sama. Jafnframt að það eigi að sameina RN, RS og SV kjördæmin í eitt kjördæmi strax og fækka þá kjördæmum í 4 úr 6. Það er síðan mín persónulega skoðun að hafa landið eitt kjördæmi.

"Munt þú beita þér fyrir því að breytingar í þá átt taki gildi við þá endurskoðun stjórnarskrár sem brátt stendur fyrir dyrum?"

Svar: Já.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?