ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SANNIR ÍSLENDINGAR?

00:25 › 19. apríl 2009


Þetta sagði Guðlaugur Þór samkvæmt Vísi.is:

"Kostirnir hefðu ekki verið jafn skýrir lengi og nú. Vinstri flokkarnir byðu upp á gamaldags leið ríkisafskipta sem Íslendingar hefðu löngu hafnað. Í kosningunum nú væri ekki aðeins vegið að Sjálfstæðisflokknum og sjálfstæðisstefnunni heldur öllu því sem væri íslenskt."


"Öllu því sem íslenskt er ..."


Hvað er hægt að leggjast lágt?


Á nú að fara að draga upp gamla frasa um "Sanna Íslendinga"? Var Halldór Laxness ekki búinn að gera endanlegt grín að svoleiðis vitleysu - og ósvífni?


Er kannski eitthvað sérstaklega íslenskt við að snapa styrki frá FL-Group? Var eitthvað voða þjóðlegt við Sjóð 9?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?