ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HVAR ER HANNES?

16:07 › 19. apríl 2009


Ég verð að segja að það kom mér svolítið á óvart að Hannes Hólmsteinn skyldi ekki þagna algjörlega eftir hrunið í fyrrahaust.

Því það var svo augljóslega hrun á öllu því sem hann hefur sagt og gert gegnum tíðina.

Hrun allrar hans stefnu.

Og vissulega var Bleik brugðið. Hannes lét lítið á sér kræla lengi.

Svo fór hann að skrifa eina og eina grein. Flestallar til varnar leiðtoga lífsins, Davíð Oddssyni.

En nú eru að koma kosningar og þá er Hannes þagnaður aftur.

Það hefur lengi tíðkast fyrir kosningar að Sjálfstæðisflokkurinn setji Hannes í þagnarbindindi. Reyni að láta fólk gleyma honum - og því að hann og skoðanir hans eru í raun það sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur gengið út á síðustu 20-30 árin.

Svo er varla búið að greiða síðasta atkvæðið þegar hann dúkkar upp aftur að túlka niðurstöðurnar fyrir sína menn.

Nú er enn eitt þagnarbindindið skollið á. Af hverju skartar Sjálfstæðisflokkurinn ekki myndum af Hannesi í kosningabaráttunni?

Hann er hugmyndafræðingurinn, bæði fyrir og eftir hrun.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?