ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.7° 4m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

Í GUÐS BÆNUM ...

17:02 › 18. apríl 2009


... ekki skila auðu.

Maður heyrir að mörgum sé nú skapi næst að skila auðu í kosningunum eftir viku.

Af því þeir séu ekki fyllilega sáttir við neinn stjórnmálaflokkanna. Eða þau ráð sem þeir bjóða eða bjóða ekki upp á.

Og vilji senda þeim sterk skilaboð um það.

Þetta er kannski skiljanlegt viðhorf, upp að vissu marki. Það er óhætt að segja að stjórnmálamenn hafi ekki staðið sig vel að undanförnu.

En þó er þetta viðhorf rangt, held ég að mér sé óhætt að segja.

Sá sem skilar auðu hafnar því að hafa áhrif næstu misserin eða árin.

Og ég skal trúa ykkur fyrir því að jafnvel þótt heil 30 prósent myndu skila auðu, þá myndi ekki annað gerast en stjórnmálamennirnir myndu eyða svona þremur og hálfri mínútu í að segja: "Ja, tja, þetta er auðvitað mikill áfellisdómur yfir okkur stjórnmálamönnum ..."

Svo myndu þeir bara snúa sér að því að vinna með það sem kemur upp úr kjörkössunum. Svo sem þeim ber að gera.

"Auður" hefur engin áhrif.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?